Tvísöngur
Tvísöngur er hljóðskúlptúr eftir þýska listamanninn Lukas Kühne.
Tvísöngur er öllum opinn. Verkinu var valinn staður á sléttum bala á kyrrlátum stað í fjallshlíðinni með útsýni yfir fjörðinn. Verkið býður upp á hljóðræna upplifun sem virkja má til söngs og hljóðtilrauna einstaklinga og hópa í einveru, í samsöng, til eigin yndisauka eða fyrir áheyrendur.
Til að fara að Tvísöng þarf að ganga malarveg sem liggur á móti fiskvinnslunni Brimberg í 15-20 mín.
Frá Tvísöng er einnig hægt að ganga áfram upp á Neðri Botna og þaðan áfram að Nautaklauf, Botnatjörn eða Dagmálalæk. Einnig er hægt að fikra sig upp að efri Botnum og þaðan áfram í fjallshlíðinni að Neðri Staf.