Handverksmarkaður
Rúmlega tuttugu handverksmenn á öllum aldri starfrækja þennan vinalega handverksmarkað saman. Þar er að finna fjölbreytt handverk, mikið úrval af ullarvörum og allskonar prjónavörum. Einnig er þar að finna málverk, muni unnar úr leir, gleri, málmi, tré, hreindýrahornum og margt, margt fleira. Sjón er sögu ríkari.
Handverksmarkaðurinn er starfræktur árið um kring.
Opnunartími
mánudaga-sunnudaga: 10:00-18:00
miðvikudaga: 10:00-21:00
Handsverksmarkaðurinn er á Norðurgötu 6 beint á móti Blóðberg og Kaffi Láru.
Deila Aftur í matur & verslun