LungA – listahátíð ungs fólks, Austurlandi

11. July, 2021 – 18. July, 2021

LungA- Listahátíð ungs fólks, Austurlandi.

Hátíðin er haldin á Seyðisfirði um miðjan júlí ár hvert. Á dagskrá eru fjölbreyttar listasmiðjur, fjölbreyttir viðburðir, þar á meðal tónleikar, uppskeruhátíð smiðjanna, myndlistarsýningar, leiksýningar og fleira og fleira.

LungA hátíðin er frábær blanda af listum, sköpun, tjáningu og stórbrotinni náttúru. Hún hefur getið sér gott orðspor, bæði á Ísland og út fyrir landsteinana fyrir frábært andrúmsloft, námskeið af miklum gæðum og með mikilli virkni þátttakenda. Ennfremur færir hátíðin gleði, sjálfsþekkingu, elskendur, nýja vini og góðar minningar fyrir þá sem sækja hátíðina heim.

Deila
dagatal

Staðsetning / Upplýsingar

Finna á korti

Related links

Dagatal