Regnbogastræti
Árið 2016 tóku íbúar og starfsmenn sveitarfélagsins sig saman og máluðu Norðurgötu í tilefni Gleðigöngu. Verkefnið fékk gríðarlega góðar viðtökur og hefur æ síðan verið endurtekið í upphafi sumars, en þá gefst gestum og gangandi að grípa í pensil og aðstoða við málun götunnar. Gatan er orðin þekkt sem Regnbogastræti og eitt helsta kennileiti Seyðisfjarðar og eitt vinsælasta myndefni Austurlands.
#regnbogastræti
#rainbowstreet