Farfuglaheimilið Hafaldan

Farfuglaheimlið Hafaldan hefur verið starfrækt síðan 1975 eða síðan ferjan Norræna hóf ferðir sínar til Seyðisfjarðarhafnar.

Í hinu sögufræga húsi Gamla spítalanum (1898) er frábær aðstaða fyrir gesti. Fallega innréttuð sameiginleg rými, eldhús, borðstofa, notaleg SPA aðstaða með saunu sem er opin og ókeypis fyrir gesti hostelsins. Eins er líka þvottavél/þurrkari aðgengileg gegn greiðsu. Lítill bar með bjór & léttvíni á góðu verði er á staðnum og fylgir opnunartíma afgreiðslunnar. Eins er hægt að bóka léttan morgunverð á staðnum.

Herbergin eru fjölbreytt í stærðum & gerðum og ýmist með baði eða án. Hentar vel fyrir fjölskyldur, pör, vinahópa eða einstaka ferðalanga.

Hafaldan er grænt farfuglaheimili og hefur notið leiðsagnar Farfuglahreyfingarinnar (Hostelling International) sem hefur verið leiðandi í því að samtvinna sjálfbærni og umhverfisvernd inn í móttöku gesta og uppbyggingu á hostelum undir sínum merkjum. Hleðslustöð fyrir bíla er við bílastæði hostelsins,  rusl er flokkað og stefnt er að því að gróðursetja tré á hverju hausti til að mæta því kolefnisspori sem reksturinn skapar.

Fyrir bestu verðin & auðveld bein samskipti ef þarf að breyta bókunum þá er LANGbest að bóka beint gegnum heimasíðuna. www.hafaldan.is

Við hlökkum til að sjá þig !

Deila
Aftur í gisting

Staðsetning / Upplýsingar

Finna á korti

Media
Luna

Allt árið

Media Luna er staðsett miðsvæðiðs á Seyðisfirði, aðeins um…

Lesa nánar

Seydisfjördur
Guesthouse

Allt árið

Seydisfjordur Guesthouse er starfrækt í fyrrum póst- og símstöð Seyðisfjarðar…

Lesa nánar

Gistihús
Sillu

Allt árið

Gistihús Sillu býður upp á þrjú tveggja manna herbergi…

Lesa nánar

Tjaldsvæði

Sumar

Tjaldsvæðið er staðsett í hjarta bæjarins, umgirt trjágróðri og…

Lesa nánar

Hótel
Aldan

Allt árið

Hótel Aldan er í þremur sögulegum húsum frá því…

Lesa nánar

Lónsleira
– íbúðir

Allt árið

Lónsleira leigir út fjórar íbúðir í tveimur nýbyggðum parhúsum.…

Lesa nánar

Við
Lónið Guesthouse

Allt árið

Húsið, Norðurgata 8 Við Lónið – guesthouse, er staðsett…

Lesa nánar