Seydisfjördur Guesthouse
Seydisfjordur Guesthouse er starfrækt í fyrrum póst- og símstöð Seyðisfjarðar við Hafnargötu 4. Húsið var byggt 1972 og tók þá við sem nýtt aðsetur Pósts- og síma.
Seydisfjördur Guesthouse er vel staðsett við aðalgötuna í nálægð við hafnarsvæðið þar sem farþegaferjan Norröna leggst að. Boðið er upp á gistingu í 6 eins til fjögurra manna herbergjum með nýjum og notalegum rúmum. Fjögurra manna herbergi eru með tveimur rúmum og koju.
Aðgangur er að fullbúnu eldhúsi, þvottavél og þurrkara auk fríu þráðlausu neti.
Seydisfjordur Guesthouse er starfrækt allt árið um kring.
Deila Aftur í gistingStaðsetning / Upplýsingar
- Hafnargata 4, 710 Seyðisfjörður
- Sími: +354 898-6242
- Netfang: [email protected]
- www.posthostel.is/